Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla í læri sem hann varð fyrir í sigri Real Madrid gegn Alaves í spænsku 1. deildinni í gærkvöldi.
ESPN greinir frá að franski sóknarmaðurinn verði frá keppni næstu þrjár vikurnar. Er um áfall fyrir Real Madrid að ræða, þar sem Mbappé hefur skorað í fimm leikjum í röð og spilað vel.
Hann missir að minnsta kosti af leikjum Real gegn Atlético og Villarreal í deildinni og svo Lille í Meistaradeildinni. Eftir það er landsleikjahlé.