Markvörðurinn Sergio Rico er á leið til Al-Gharafi í Katar en Aron Einar Gunnarsson gekk til liðs við félagið í gær. Rico hefur verið frá keppni í rúmt ár eftir skelfilegt slys á hestbaki.
Rico féll af hestbaki og varð fyrir miklum áverkum á höfði og hálsi. Markvörðurinn var í dái í nítján daga og varði 36 dögum á gjörgæslu áður en hann var útskrifaður í júlí 2023.
Í apríl á þessu ári fékk hann loks grænt ljós frá læknum og mátti spila fótbolta aftur en hann var samningsbundinn PSG. Einnig hefur Rico leikið með Mallorca, Sevilla og Fulham.