Spænski þjálfarinn Xavi er sagður hafa hafnað tilboði Roma um að taka við starfi Daniele De Rossi sem rekinn var á dögunum. Xavi yfirgaf Barcelona eftir síðasta tímabil og hefur verið án starfs síðan.
Króatinn Ivan Juric tók við starfinu af De Rossi en samkvæmt Corriere dello Sport var Xavi efstur á blaði forsvarsmanna Roma. Xavi þjálfaði Barcelona í þrjú ár og stýrði liðinu til meistaratitils á öðru ári sínu hjá félaginu.
Eigendur Roma, Friedkin Group, hafa samþykkt að kaupa enska úrvalsdeilarfélagið Everton.