Dortmund er komið upp í annað sæti þýsku 1. deildarinnar í fótbolta eftir sigur á Bochum, 4:2, á heimavelli sínum í kvöld.
Matus Bero og Dani de Wit komu Bochum í 2:0 eftir 21 mínútu. Serhou Guirassy lagaði stöðuna fyrir Dortmund rétt fyrir hlé og voru hálfleikstölur 2:1.
Emre Can jafnaði í 2:2 úr víti á 62. mínútu og Guirassy gerði sitt annað mark og þriðja mark Dortmund á 75. mínútu áður en varamaðurinn Felix Nmecha gerði fjórða markið.
Dortmund er í þriðja sæti með tíu stig, tveimur stigum á eftir Bayern München sem á leik til góða.