Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson var hetja Düsseldorf er liðið vann dramatískan útisigur á Greuther Fürth í B-deild Þýskalands í fótbolta í kvöld.
Ísak lék allan leikinn fyrir Düsseldorf og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma úr vítaspyrnu. Valgeir Lunddal Friðriksson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Düsseldorf og lék fyrstu 80 mínúturnar.
Düsseldorf er í toppsætinu með 17 stig, þremur stigum á undan Karlsruher sem á leik til góða.