Cecilía hélt hreinu í mikilvægum sigri

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir. Ljósmynd/Inter Women

Landsliðskonan Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt hreinu í sigri Inter á Napoli í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag en leiknum lauk með 1:0 sigri heimakvenna.

Cecilía lék allan leikinn í marki Inter en eina mark leiksins skoraði Lina Magull á 8. mínútu.

Eftir leikinn er Inter í 2. sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Juventus sem á leik inni á Inter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka