[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 14.3.2010
EM: Henrik vann - Hannes tapaði 
Skák.is Henrik Danielsen (2494) sigraði hvít-rússneska stórmeistarann Sergei Azarov (2621) í áttundu umferð EM einstaklinga sem fram fór í Rijeka í Króatíu í dag. Hannes Hlífar Stefánsson (2574) tapaði fyrir pólska stórmeistarann Bartlomiej Macieja (2625) í… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi.

Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi. Brynjar Gauti

Íþróttir | mbl.is | 21.11.2009 | 18:54

Jakob annar bestur í Evrópu

Jakob Jóhann Sveinsson, Sundfélaginu Ægi, heldur áfram að stórbæta eigin Íslandsmet í bringusundi á Íslandsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Laugardalslaug. Í gær bætti hann metið í 200 m bringusundi um þrjár sekúndur og í dag bætti hann metið í 100 m bringusundi um 1,3 sekúndur og varð fyrstu Íslendinga til þess að synda greinina á skemmri tíma en einni mínútu.

Jakob Jóhann synti í dag á 58,91 sekúndu sem er annar besti tími í Evrópu í greininni á þessu sundári sem miðast við 1. ágúst. Þetta er jafnframt annar besti árangur Norðurlandabúa og 16. besti tími Evrópubúa frá upphafi vega. Norðurlandametið á Svíinn Alexander Dale Oen, 58,14. 

Annar í 100 m bringusundi karla í dag varð Árni Már Árnason. Hann kom í mark á 1.00,34 sekúndum og var 16/100 úr sekúndu frá fyrra Íslandsmeti Jakobs Jóhanns.

Í 100 m bringusundi kvenna féll Íslandsmetið einnig í hörkukeppni milli Hrafnhildar Lúthersdóttur, SH, og Erlu Daggar Haraldsdóttur, sem keppti sem gestur á mótinu.  Hrafnhildur vann á tímanum 1.08,46 en gamla metið var í eigu Erlu Daggar, 1:08,58.  Erla Dögg synti á 1:08,79 og varð önnur.

Í 400 m fjórsundi varð Íslandsmeistari kvenna Inga Elín Cryer, ÍA á nýju stúlknameti, 4.53,20.  Í öðru sæti var Salóme Jónsdóttir, ÍA á nýju telpnameti, 4.57,09.  Þriðja var Jóna Helena Bjarnadóttir, ÍRB, á 4.59,59. Gunnar Örn Arnarson, ÍRB, varð Íslandsmeistari karla í 400 m fjórsundi á 4.29,02, annar var Birgir Viktor Hannesson á 4.47,61 og þriðji var Aron Örn Stefánsson á 4.58,24.
 
Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi varð Íslandsmeistari í 100 m baksundi og hjó nærri Íslandsmetinu.  Hún synti á 1.03,10 og sló þar með bæði telpna- og stúlknametið.  Í öðru sæti var systir hennar Jóhanna Gerða, Ægi, á 1.03,83 og þriðja Soffía Klemenzdóttir á 1.06,07.  Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, ÍRB, varð Íslandsmeistari karla í 100 m baksundi karla á 58,55 sekúndum annar var Kolbeinn Hrafnkelsson, SH, á 59,32 og þriðji Jón Símon Gíslason, Ægi á 1.00,96.

Bryndís Rún Hansen, Óðni, hjó nærri Íslandsmeti sínu sem hún setti í morgun í 50 m flugsundi þegar hún varð Íslandsmeistari í greininni og synti á 27,28.  Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, SH, varð önnur á 28,14 og Hrafnhildur Lútersdóttir, SH þriðja á 28,27. Hjörtur Már Reynisson varð Íslandsmeistari karla í 50 m flugsundi á 24,40, annar var Bragi Þorsteinsson, SH, á 25,52 og þriðji Kristinn Ásgeir Gylfason, ÍRB á 26,01.

200 m skriðsund var síðasta einstaklingsgrein í úrslitum í dag og þar varð Íslandsmeistari kvenna Sigrún Brá Sverrisdóttir, Ægi, en  hún synti á 2.02,33.  Önnur var Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi, á nýju telpnameti, 2.03,76 og þriðja Karen Sif Vilhjálmsdóttir, einnig úr Ægi á 2.09,05.  Hjá strákunum varð Íslandsmeistari Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, ÍRB á 1.52,97, annar var Anton Sveinn McKee, Ægi á 1.53,79 og þriðji Orri Freyr Guðmundsson, SH á 1.54,77.

Síðasta greinin var mikil spennugrein, 4x50m fjórsund og þar urðu Íslandsmeistarar kvenna A sveit SH á 1.59,89. Sveitina skipuðu Snjólaug TInna Hansdóttir, Hrafnhildur Lútersdóttir sem setti nýtt telpnamet í fyrsta spretti, 50 m baki á 30,04, Bára Kristín Björgvinsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir.  Í öðru sæti var A sveit Óðins og í því þriðja var A sveit ÍRB. Ranveig Rögn Leifsdóttir setti meyjamet í fyrsta spretti fyrir A sveit KR þegar hún synti á 32,21.  Hjá strákunum urðu Íslandsmeistarar A sveit SH á 1.45,05 en sveitina skipuðu Kolbeinn Hrafnkelsson, Mladen Tepavcevic, Sindri Snævar Friðriksson og Bragi Þorsteinsson.  Í öðru sæti var A sveit KR og í því þriðja var A sveit ÍRB.  A sveit Ægis sem kom fyrst í mark var dæmd úr leik vegna ólöglegrar skiptingar. B sveit SH setti piltamet í þessu sundi en þeir voru í fjórða sæti á 1.48,52.  Sveitina skipuðu þeir Njáll, Konráð, Sigurður Friðrik og Orri Freyr.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Sunnudaginn 7. mars
Laugardaginn 6. mars