SR upp að hlið SA
SA og SR mættust á Akureyri í kvöld en leikurinn var lokaviðburður opnunarhátíðar Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ. Hart var tekist á á svellinu og fór SR með sigur af hólmi 8:4 og komst þar með upp að hlið SA með 22 stig en Björninn hefur 19 stig. Egill Þormóðsson skoraði þrennu fyrir SR en „Lurkurinn“ Rúnar Rúnarsson skoraði 2 fyrir SA.
Mörk/stoðsendingar SA: Rúnar Rúnarsson 2/0, Jón Benedikt Gíslason 1/2, Jóhann Már Leifsson 1/0, Orri Blöndal 0/1, Josh Gribben 0/1.
Mörk/stoðsendingar SR: Daniel Kolar 2/3, Egill Þormóðsson 3/0, Arnþór Bjarnason 1/2, Þórhallur Viðarsson 1/2, Svavar Rúnarsson 1/0, Steinar Páll Veigarsson 0/1
SA hleypti spennu í leikinn með því að skora fyrstu tvö mörkin í síðasta leikhlutanum og minnka muninn í 5:4. SR landaði hins vegar öruggum sigri með því að skora síðustu þrjú mörk leiksins.
Gestirnir úr Reykjavík hafa yfirhöndina 5:3 eftir tvo leikhluta af þremur. SR skoraði tvívegis undir lok annars leikhluta á aðeins mínútu kafla en liðið nýtti sér vel þegar SA missti tvo menn út af í kælingu.
SR komst tvisvar yfir í leiknum í fyrsta leikhluta en SA var þó sterkara liðið. Að loknum fyrsta leikhluta var staðan 2:2.
Mikil og hatrömm barátta er í deildinni um að hreppa sæti í úrslitakeppninni og sigur í dag þýðir mikið fyrir hvort lið. Þrjú stig fást fyrir sigur og hvert lið á aðeis þrjá leiki eftir svo nú verður barist upp á líf og dauða í hverjum leik.
Til baka







Senda inn efni
