[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 18.3.2010
Páll sigraði á hraðkvöldi Hellis 
Skák.is Páll Andrason sigraði örugglega á hraðkvöldi sem haldið var 15. mars sl. Páll fékk 6,5v í sjö skákum og leyfði aðeins eitt jafntefli við Örn Leó. Jöfn í öðru og þriðja sæti voru svo Elsa María Kristínardóttir og Geir Guðbrandsson með 5v. Páll fékk svo að… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 09:44

Dýrlingar New Orleans loks meistarar

Eftir Gunnar Valgeirsson í Bandaríkjunum, gval@mbl.is
Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

New Orleans Saints kom öllum nema harðasta stuðningsfólki sínu á óvart með því að sigra Indianapolis Colts í 44. Ofurskálarleiknum í Miami, 31:17. Næstum allir svokallaðir NFL ruðningssérfræðingar spáðu Indianapolis sigri í þessum leik vegna yfirburðarleik liðsins allt keppnistímabilið, auk þess sem Dýrlingarnir höfðu átt erfitt í báðum leikjum sínum til þessa í úrslitakeppninni.

Tvö af bestu sóknarliðum deildarinnar mættust í þetta sinn og búist var við háu stigaskori. Í hálfleik var staðan 10:6 fyrir Colts í jöfnum leik eftir að liðið komst strax í 10:0 eftir fyrsta leikhlutann. Bæði sóknarliðin virtust mætt til leiks af varfærni og tóku þjálfarar litla áhættu.

 Í upphafi seinni hálfleiks breyttist þetta hinsvegar þegar New Orleans reyndi brellu í upphafssparki hálfleiksins og af þeim sökum náði liðið valdi á tuðrunni. Úr þeirri sókn skoraði Pierre Thomas snertimark eftir sendingu leikstjórnandans Drew Brees, og með því var Saints allt í einu með forystu í leiknum, 13:10.

Indianapolis vaknaði einnig til lífsins og svaraði með sínu eigin snertimarki, 17:13. Garrett Hartley, sparkari New Orleans, skoraði næst þriðja langa vallarmark sitt í leiknum, og þegar lokaleikhlutinn hófst var allt í járnum, 17:16 fyrir Indianapolis.

Drew Brees var valinn maður leiksins í nótt.

Drew Brees var valinn maður leiksins í nótt. Reuters

Fram til þessa var þetta jafn og spennandi leikur, en sóknarliðin fóru loks að taka áhættu í leik sínum í seinni hálfleiknum. Bæði varnarliðin áttu góðan kafla mestallann fjórða leikhlutann þar til tæpar sex mínútur voru eftir þegar Brees sendi stutta sendingu á gömlu kempuna Jeremy Shockey sem náði að skora í þröngri stöðu, 24:17 fyrir New Orleans.

Flestir bjuggust nú við að sjeníið Payton Manning, leikstjórnandi Colts, myndi nú sýna hæfni sína með því að koma liði sínu fram völlinn og jafna leikinn. Sjónvarpsþulir CBS voru meira að segja farnir að spá í framlengingu, en enginn Ofurskálarleikur hafði farið í framlengingu til þessa.

Allt virtist Manning í haginn þegar hann stjórnaði liði sínu rólega fram leikvöllinn með nægan tíma sér til handar. Colts komst í gott skorunarfæri þegar hið ótrúlega gerðist þremur mínútum fyrir leikslok. Tracy Porter, varnarmaður Saints, komst þá inn í sendingu Manning og hljóp 74 stikur framm leikvöllinn ósnertur - 31:17 fyrir Dýrlingana.

„Ég sá þá reyna sóknaraðferð sem þeir hafa leikið allt keppnistímabilið og ég reyndi strax að bregðast við væntanlegri sendingu Mannings," sagði Porter í leikslok. „Ég veit að þetta á eftir að kæta stuðningsfólk okkar sem hefur verið frábært fyrir okkur undanfarin ár. Áhangendur okkar eiga stóran þátt í þessum meistaratitli," bætti kappinn við en hann er fæddur og uppalinn í Louisianafylki.

 

Sean Payton þjálfari New Orleans með verðlaunagripinn á lofti.

Sean Payton þjálfari New Orleans með verðlaunagripinn á lofti. Reuters

Í þessari stöðu voru Dýrlingarnir allt í einu tveimur snertimörkum yfir. Þessi munur reyndist of mikill í lokin og varnarlið New Orleans sá um restina.

Saints voru vel að sigrinum komnir, enda tóku þjálfarar liðsins meiri áhættu og þegar á hólminn kom voru það leikmenn New Orleans sem léku best, bæði í sókn og vörn. Indianapolis mætti sigurstranglegt til leiks, en það er ástæða fyrir því að íþróttaeðjótar horfa á kappleiki. Maður veit aldrei hvað gerist í sérhverjum leik!

Þetta eru ein óvæntustu úrslit í sögu Ofurskálarleikjanna og í fyrsta sinn sem New Orleans komst í lokaúrslitin. Flestir íþróttaaðdáendur hér í landi hafa eflaust haldið meira með New Orleans í þessum leik, sérstaklega ef tillit er tekið til hversu erfitt New Orleansborg hefur átt uppdráttar eftir flóðin miklu 2005, eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir Louisianaströnd. New Orleans stóð þá frammi fyrir því að leikvangur liðsins var stórskemmdur og útlit var fyrir að Saints yrði flutt til annararborgar.

Eigandi liðsins og NFL deildin sjálf ákváðu hinsvegar að gera allt sem til þurfti til að tryggja áframhaldandi veru Saints í borginni, enda höfðu áhangendur Dýrlinganna stutt lið sitt af mikilli ákefð, þrátt fyrir afleitan leik liðsins í gegnum áratugina.

Það verður eflaust mikið um hátíðarhöld alla þessa vikuna í partíborginni við Mexíkóflóann. Mardi Gras hátíðarhöldin verða í næstu viku, en þau eru ávallt litríkur kafli í borgarlífi New Orleans hvert ár.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Sunnudaginn 7. mars