[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 20.3.2010
Carlsen efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Norski skákmaðurinn Magnus Carlsen náði forystunni á Amber-mótinu með 2-0 sigri á Gelfand í gær. Á meðan gerði helsti andstæðingur hans Úkraínski skákmaðurinn Ivanchuk 1-1 jafntefli við landa sinn Ponomariov. Gelfand, Grischuk og Kramnik eru í 3.-5.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Saints skora snertimark í úrslitaleiknum í nótt.

Saints skora snertimark í úrslitaleiknum í nótt. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 07:13

Mikil gleði í New Orleans

Mikil gleði braust út í New Orleans í Bandaríkjunum í nótt þegar ruðningslið borgarinnar, New Orleans Saints bar sigurorð af Indianapolis Colts í Super Bowl,  úrslitaleik bandarísku ruðningsdeildarinnar, 31:17. Þetta er í fyrsta skipti sem Saints sigra í Super Bowl.

Drew Brees með Baylan son sinn eftir sigurinn í nótt.

Drew Brees með Baylan son sinn eftir sigurinn í nótt. Reuters

Frammistaða liðsins í vetur hefur bæði komið á óvart og hvatt íbúa borgarinnar til dáða en þeir glíma enn við afleiðingar fellibylsins Katrínu, sem fór yfir borgina haustið 2005.

Það var einkum frammistöðu Drew Brees, leikstjórnanda Saints, að þakka að liðið hampaði bikarnum í nótt. Hann átti 32 sendingar sem gáfu 288 jarda og tvö snertimörk og var valinn besti leikmaður mótsins.  

New Oreans-búar fagna í Bourbon-stræti í nótt.

New Oreans-búar fagna í Bourbon-stræti í nótt. Reuters

„Við höfðum trú á okkur," sagði Brees eftir leikinn. „Við vissum að heil borg og jafnvel heil þjóð treysti á okkur. Þetta átti að fara svona, þetta voru örlögin."

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars