Sigurður Kristjánsson vann annað stigamótið í úrslitaleik gegn Þorra Jenssyni, Íslandsmeistara árið 2023, á Snóker&Pool í Lágmúla. Leikurinn var gríðarlega spennandi og endaði 3:2 fyrir Sigurði.
Í riðlakeppninni gerði Þorri stuð upp á 93 stig. Sigurður bætti það hins vegar og gerði stuð upp á 111 stig. Í undanúrslitunum hafði Sigurður betur gegn Unnari Bragasyni, sem vann fyrsta stigamótið, og gerði stuð upp á 104 stig.
Sigurður komst yfir í úrslitaleiknum 1:0 en Þorri svaraði með því að vinna næstu tvo ramma. Sigurður gafst ekki upp, jafnaði metin og vann svo oddarammann og leikinn þar með.
Á næstu helgi verður Tvímenningsmót haldið í snóker á Billiardbarnum og verða Sigurður og Þorri á meðal keppenda.