18 ára hjólreiðakona í lífshættu

Heimsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer nú fram í Sviss.
Heimsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer nú fram í Sviss. AFP/Fabrice Coffrini

Svissneska götuhjólreiðakonan Muriel Furrer slasaðist alvarlega á heimsmeistaramótinu í götuhjólreiðum sem nú stendur yfir í Zürich í Sviss.

Furrer, sem er 18 ára gömul, var að keppa í ungmennaflokki á mótinu en hún datt illa í brautinni og slasaðist á höfði. Hún var flutt með sjúkraflugi á nærliggjandi spítala.

„Hún slasaðist mjög alvarlega á höfði og er í lífshættu,“ segir í tilkynningu sem mótshaldarar í Sviss sendu frá sér í gær. 

Í tilkynningunni kemur einnig fram að slysið sé til rannsóknar hjá yfirvöldum í Sviss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert