Breska tennisgoðsögnin Andy Murray mun þjálfa Novak Djokovic í aðdraganda að Opna ástralska meistaramótinu í tennis næstkomandi janúar.
Murray lagði spaðann á hilluna eftir Ólympíuleikana á þessu ári. Hann hefur unnið þrjú risamót á ferlinum.
Djokovic á möguleika á að vinna Opna ástralska mótið í ellefta skipti í janúar. Hann hefur unnið 24 risamót á ferlinum en enginn hefur unnið fleiri risamót en hann.
Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu Djokovic á samfélagsmiðlinum X.
He never liked retirement anyway. 🙌 pic.twitter.com/Ga4UlV2kQW
— Novak Djokovic (@DjokerNole) November 23, 2024