Ólafur Stefánsson tryggði Spánarmeisturum Ciudad Real nauman sigur á Naturhouse La Rioja, 31:30, á útivelli í kvöld í spænsku 1. deildinni í handknattleik. Ólafur skoraði sigurmark liðsins í leiknum og var það eitt sex marka hans í leiknum.
Leikmenn Ciudad Real lentu í kröppum dansi leiknum því andstæðingarnir í smáliðinu Naturhouse La Rioja veittu þeim harða keppni og voru á köflum í leiknum með frumkvæðið.
Barcelona er í efsta sæti spænsku 1. deildarinnar. Liðið hefur 22 stig að loknum 12 leikjum en Barcelona vann í kvöld Granolles, 32:26, á útivelli. Reale Ademar er í öðru sæti með 21 stig og Ciudad Real er einu stig þar á eftir.