Einar: Höfum ekki endalausan tíma
Einar Jónsson þjálfari Framara var að vonum svekktur eftir naumt tap gegn HK í Digranesinu í kvöld, 28:27, þar sem liðin áttust við í N1-deild karla í handknattleik. Hann segir sóknarleik sinna manna hafa verið allt of slakan og að frammistaða dómara leiksins hafi ekki hjálpað til.
„Við erum að sjálfsögðu mjög svekktir. HK spilaði illa í sókninni í fyrri hálfleik en okkur tókst ekki að nýta það því við gerðum svo mikið af klaufalegum mistökum. Við hefðum átt að geta verið fjórum mörkum yfir í hálfleik í stað þess að vera tveimur undir ef við hefðum bara nýtt hraðaupphlaupin,“ sagði Einar í samtali við mbl.is eftir leikinn. Hann var þó ekki eingöngu ósáttur við leik sinna manna heldur einnig dómara leiksins sem dæmdu á tíðum ansi furðulega.
„Seinni hálfleikurinn var í lagi framan af en það var óskiljanlegur munur á því fyrir hvað leikmenn liðanna fengu tveggja mínútna brottvísun. Ég veit ekki hvað þessum mönnum gekk til. Það var bara ekkert samræmi í dómgæslunni. Það afsakar þó ekki öll þessi mistök í sókninni hjá okkur. Það er það sem við þurfum að laga,“ sagði Einar.
Fram er enn á botni deildarinnar með 2 stig en Einar sér nú fram á bjartari tíma eftir að liðið fékk til sín þá Daníel Berg Grétarsson, Guðjón Drengsson og Egil Einarsson í jólafríinu.
„Að sjálfsögðu geri ég það en við höfum ekki endalausan tíma. Við verðum bara að girða okkur í brók og ná okkur í einhver stig. Þetta verður ekkert auðveldara eftir því sem á líður en ég er alltaf bjartsýnn og líður alltaf vel á leikdegi,“ sagði Einar.
Til baka







Senda inn efni
