[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 21.3.2010
Íslandsmót barnaskólasveita fer fram í dag í Smáralindinni 
Skák.is Íslandsmót barnaskólasveita 2010 fer fram í Vetrargarðinum, Smáralind , sunnudaginn 21.mars. Mótshaldið er í höndum Skákakakademíu Reykjavíkur í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Tefldar verða 8 umferðir eftir Monrad-kerfi - umhugsunartími 10 mín.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, baðar úr höndunum.

Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, baðar úr höndunum. Árni Sæberg

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 22:45

Erfitt en vorum með tak á leiknum

„Þetta var erfitt hjá okkur en mér fannst við hafa þó tak á leiknum lengst af en vissulega hefði ég viljað sjá mína menn gefa aðeins í ná meira forskoti en raun varð á,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari  Vals, eftir sigur á Stjörnunni, 24:19, í N1-deild karla í handknattleik í Vodafone-höllinni í kvöld. Með sigrinum komst Valur upp í annað sæti deildarinnar en er sem fyrr þremur stigum á eftir Haukum sem tróna á toppnum.

„Við vorum klaufar að gera ekki betur í sókninni. En varnarleikurinn og markvarslan var fín og við fengum aðeins á okkur nítján mörk. Það er mjög gott,“ sagði Óskar sem saknaði Fannars Friðgeirssonar úr Valsliðinu í kvöld. Fannar brákaði rifbein í kappleik við Gróttu í síðustu viku. Þá var Ernir Hrafn Arnarson ekki heldur með vegna bólgu í hné. Baldvin Þorsteinsson hóf leikinn með Val en hann hefur verið lengi frá vegna axlarmeiðsla. Baldvin fann hins vegar fyrir tognun í nára og fór snemma af leikvelli.

Hlynur Morthens, markvörður Vals, varði 20 skot í kvöld, þar af þrjú vítaköst og reyndist Stjörnumönnum óþægur ljár í þufu. „Hlynur hefur verið mjög jafngóður í öllum leikjum okkar í vetur að einun undanskildum og þá var hann veikur af svínaflensu. Hann hefur verið okkar jafnbesti leikmaður í vetur," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.

Nánar verður fjallað um viðureign Vals og Stjörnunnar í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars