[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 22.3.2010
Ivanchuk efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Ivanchuk er efstur á Amber-skákmótinu að lokinni áttundu umferð sem fram fór í kvöld. Íöðru sæti, vinningi á eftir Ivanchuk, er Carlsen sem mátti sætta sig við tap ½-1½ gegn Kramnik. Gelfand og Kramnik eru í 3.-4. sæti. Grischuk er nú orðinn efstur í… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar.

Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar. mbl.is/hag

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 23:16

Rúnar Sigtryggson: Snerist um að sýna hvað í mönnum býr

Eftir Andra Yrkil Valsson, sport@mbl.is

„Ég sagði við strákana fyrir leikinn að nú mundi þetta snúast um hvað býr í mönnum eftir dapran leik í síðustu umferð og þeir sýndu það í þessum leik,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, eftir stórsigur sinna manna á Gróttu, 33:19 í N1 deild karla í handknattleik en liðin mættust á Akureyri í kvöld. 

Halldór Ingólfsson hjá Gróttu var að vonum fámáll í leikslok. „Þetta var bara svart og hvítt í þessum leik,við vorum einfaldlega lélegir og engan veginn með hugann við leikinn.”

Gróttumenn voru gjörsamlega kafsigldir í leiknum og ógnuðu aldrei forskoti Akureyringa. Mestur var munurinn sextán mörk í síðari hálfleik og virtust gestirnir vera algjörlega búnir á því. Sigur heimamanna hefði hæglega getað verið stærri, en markverðir Gróttu, þeir Magnús Sigmundsson og Gísli Guðmundsson, komu í veg fyrir frekari niðurlægingu sinna manna, en þeir vörðu samtals rúmlega 20 skot í öllum regnbogans litum.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars