[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 18.3.2010
Páll sigraði á hraðkvöldi Hellis 
Skák.is Páll Andrason sigraði örugglega á hraðkvöldi sem haldið var 15. mars sl. Páll fékk 6,5v í sjö skákum og leyfði aðeins eitt jafntefli við Örn Leó. Jöfn í öðru og þriðja sæti voru svo Elsa María Kristínardóttir og Geir Guðbrandsson með 5v. Páll fékk svo að… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
David Barrufet lokar á leikmann króatíska landsliðsins á HM í fyrra.

David Barrufet lokar á leikmann króatíska landsliðsins á HM í fyrra. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 9.2.2010 | 10:20

Barrufet hættir eftir sigursælan feril

Spænski handknattleiksmarkvörðurinn David Barrufet hefur ákveðið að hætta að segja skilið við handknattleik í vor og snúa sér að öðrum hugðarefnum. Barrufet er á fertugasta aldursári og hefur verið einn fremsti markvörður Evrópu um langt árabil. Hann hefur verið leikið með Barcelona í 22 ár og unnið með félaginu um 70 titla. Auk þess á Barrufet að baki 280 landsleiki fyrir Spán.

Barrufet tilkynnti ákvörðun sína um að hætta í gær en hann mun leika með Barcelona út þetta keppnistímabil.

Barrufet hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna bæði með Barcelona og spænska landsliðinu. Hann hefur orðið Evrópumeistari með Barcelona  sjö sinnum og spænskur meistari í 11 skipti. Heimsmeistari varð Barrufet með landsliði Spánar fyrir fimm árum og þá var hann var í bronsliði Spánverja á síðustu Ólympíuleikum og einnig á Sydneyleikunum fyrir 10 áru. Barrufet var einnig í silfurliði Spánverja á EM 1998 og aftur átta árum síðar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars