Skara hafði betur gegn Ystad, 37:25, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Akureyringurinn Aldís Ásta Heimisdóttir, sem er á sínu þriðja tímabilinu með Skara, átti flottan leik fyrir gestina og skoraði fimm mörk.
Leikurinn var liður í annarri umferðinni. Skara tapaði í fyrstu umferð og er því með tvö stig eftir tvo leiki.