Ómar og Gísli góðir í tapi

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik með …
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik með Magdeburg. Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Þýskalandsmeistarar Magdeburg þurftu að þola 29:24-tap gegn Kiel í 3. umferð efstu deildar Þýskalands í handbolta í dag.  

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoruðu báðir þrjú mörk fyrir Magdeburg. Gísli Þorgeir lagði einnig upp sex mörk og Ómar Ingi gaf þrjár stoðsendingar.  

Úrslitin þýða að Magdeburg situr í áttunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjá leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert