Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðsmaður í handbolta, er brögðóttur þegar hann kemst nálægt marki andstæðinganna.
Hornamaðurinn hefur skorað mörg einstaklega falleg mörk á ferlinum og handknattleikssamband Evrópu rifjar upp þrjú ógleymanleg á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Tvö þeirra eru með svissneska liðinu Kadetten og eitt með íslenska landsliðinu, í leik gegn Frökkum á EM í byrjun árs.
Markið sem hann skoraði með landsliðinu var það besta, því það var blanda af sirkusmarki og skoti aftur fyrir bak, eftir sendingu frá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.
Sjón er sögu ríkari en mörkin má sjá hér fyrir neðan.
🇮🇸 Óðinn Þór Ríkharðsson is 𝒊𝒄𝒐𝒏𝒊𝒄 ✨⚫️🟠 #ehfel #elm #allin #handball @kadettensh @HSI_Iceland pic.twitter.com/MVQmrWXFtB
— EHF European League (@ehfel_official) September 23, 2024