„Goðsögnin“ Aron í Evrópudeildinni

Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson mætast í Evrópudeildinni. Guðjón …
Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson mætast í Evrópudeildinni. Guðjón sem þjálfari og Aron sem leikmaður. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Evrópudeild karla í handbolta birti mynd og myndband af Aroni Pálmarssyni á X-reikningi deildarinnar í dag en FH hefur leik þann 8. október. Aron er eitt af stærstu nöfnum keppninnar í ár.

„Goðsögnin Aron Pálmarsson spilar í Evrópudeildinni með FH á tímabilinu. Eruð þið spennt?“ segir í færslunni en nokkur af glæsimörkum Arons fyrir landsliðið og Barcelona eru í meðfylgjandi myndbandi.

Auk FH munu Evrópubikarmeistarar Vals taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í ár. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert