Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður í handbolta átti góðan leik fyrir pólska liðið Wisla Plock er það mátti þola naumt tap á heimavelli gegn París SG í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 24:23.
Viktor stóð á milli stanganna hjá Wisla Plock nær allan leikinn og varði 13 skot og var með rétt tæplega 40 prósenta markvörslu.
PSG komst í 24:21 þegar þrjár og hálf mínúta var eftir en Wisla Plock minnkaði muninn í eitt mark þegar 98 sekúndur voru eftir. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri.
Wisla Plock er enn án stiga eftir þrjá leiki í A-riðli. PSG er með fjögur stig.