Arendal tryggði sér sæti í átta liða úrslitum norska bikarsins í handbolta með sigri á Bækkelaget á heimavelli í kvöld.
Akureyringurinn Dagur Gautason átti flottan leik fyrir Arendal og skoraði sex mörk, þar af eitt úr víti. Árni Bergur Sigurbergsson var ekki í leikmannahópi liðsins.
Arendal er í sjöunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki.