Gummersbach vann sterkan 32:30-útisigur gegn Bietigheim í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach.
Elliði Snær Viðarsson átti góðan dag og skoraði sex mörk fyrir Gummersbach. Teitur Örn Einarsson var einnig í liði Gummersbach en hann náði ekki að koma sér á blað.
Úrslitin þýða að Gummersbach situr í sjötta sæti deildarinnar með sex stig eftir fimm leiki.