
Jón Ólafur Jónsson var heitur hjá Snæfell í dag og skoraði 23 stig. mbl.is/Brynjar Gauti
Snæfell í bikarúrslit eftir öruggan sigur í Keflavík
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster HjartarsonNú er kallin kátur
-
Halldór JóhannssonVið Foster sofnum...
Keflavík og Snæfell áttust við í Keflavík í undanúrsiltum Subwaybikarsins í körfuknattleik karla í dag. Snæfell vann öruggan sigur 90:64 og tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll. Andstæðingar þeirra verða annað hvort ÍR eða Grindavík. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
40. mín: LEIK LOKIÐ. Snæfell sigraði 90:64. Frábær frammistaða hjá Snæfell og Keflvíkingar náðu ekki að setja verulega spennu í leikinn í síðari hálfleik.
30. mín: Staðan er 48:63 fyrir Snæfell fyrir síðasta leikhlutann. Gestirnir úr Stykkishólmi eru að spila gríðarlega vel og virðast vera komnir með annan fótinn í Laugardalshöllina. Jón Ólafur Jónsson hefur verið sjóðandi heitur hjá Snæfelli og hefur skorað 20 stig.
20. mín: Staðan er 29:46 fyrir Hólmarar að loknum fyrri hálfleik. Keflvíkingar þurfa að komast í réttan gír í síðari hálfleik ætli þeir sér að komast í úrslitaleikinn. Snæfell er annálað fyrir öflugan varnarleik og það getur orðið þrautinni þyngri hjá Keflavík að vinna upp mikið forskot gegn þeim
Til baka







Senda inn efni
