[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 9.3.2010
Áskorendaflokkur fer fram í Mosfellsbæ um páska 
Skák.is Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram í íþróttamiðstöðinni, Lágafelli , í Mosfellsbæ dagana 30. mars til 10. apríl nk. Teflt verður yfir páska og hefst taflmennskan kl. 18 á virkum dögum en kl. 14 um helgar. Skráning fer fram á Skák.is Samhliða… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Magnús Gunnarsson Njarðvíkingur sækir að körfu KR í leiknum í kvöld.

Magnús Gunnarsson Njarðvíkingur sækir að körfu KR í leiknum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 20:56

KR áfram á toppnum eftir sigur á Njarðvík

Eftir Helga Reyni Guðmundsson, sport@mbl.is

KR er áfram á toppi úrvalsdeildar karla, Iceland-Express deildarinnar, í körfuknattleik eftir sigur á Njarðvík, 89:77, í DHL-höllinni í Vesturbænum í kvöld.

KR-ingar eru með 26 stig eftir sigurinn og verða áfram í toppsætinu að 16 umferðum loknum. Njarðvíkingar eru áfram í fimmta sætinu með 22 stig.

Nánar er fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

40. mín. Leiknum er lokið með sigri KR, 89:77. Eftir spennandi leik tóku KR-ingar öll völd í lokafjórðungnum og unnu góðan sigur.  Njarðvíkingar skoruðu aðeins 7 stig í fjórðungnum á meðan KR náðu góðum rispum á báðum endum vallarins sem skóp sigur þeirra í kvöld.  Íslandsmeistararnir halda því toppsætinu efti leikinn og virðast vera til alls líklegir í vetur. 

36. mín. Staðan er orðin 83:71 fyrir Njarðvík. KR-ingar byrja lokafjórðunginn mun betur og eru komnir með 12 stiga forskot eftir m.a. þriggja stiga körfu frá Brynjari Björnssyni. 

30. mín. Þriðja leikhluta lokið og staðan 70:70. Mikið jafnræði er með liðunum, menn gera sig klára fyrir lokafjórðunginn.  Það stefnir í dramtík í DHL-höllinni. 

24.30 mín. -  Seinni hálfleikur byrjar fjörlega þar sem Brynjar Björnsson og Guðmundur Jónsson fá báðir dæmda á sig tæknivillu fyrir stimpingar.  Staðan er 59:60 fyrir Njarðvík og þetta stefnir í spennuleik til loka ef mið er tekið af því sem gengur á í augnablikinu.

20. mín. - Það er hálfleikur og Njarðvíkingar eru yfir, 44:50.  Jóhann Ólafsson kom sterkur inn af bekknum fyrir Njarðvík og skoraði 14 stig (4/4 í þriggja stiga).  Næstur honum í stigaskorun er Nick Bradford með 12 stig.  Í liði KR-inga er Tommy Johnson stigahæstur með 16 stig, Brynjar Björnsson - sem byrjaði leikinn af miklum krafti - er með 11 stig.  Það fer ekkert á milli mála að óðum styttist í úrslitakeppnina þar sem liðin keppast um að koma sér í sem besta stöðu fyrir baráttuna sem þar er framundan.  Þessi fyrri hálfleikur ber þess glöggt merki. 

17. mín. -  KR-ingar leiða með þremur stigum 40:37.  Það er greinilegt að mikið er í húfi í þessum leik þar sem liðin keppast um að komast í sem besta stöðu í deildinni fyrir úrslitakeppnina sem óðum styttist í og allir bíða eftir.

12.45 mín. - Það er að færast meiri harka í leikinn og rétt í þessu var dæmd tæknivilla á Brynjar Þór Björnsson leikmann KR.  Staðan er 32:29 fyrir heimamenn.

10. mín. - 1. leikhluta er lokið í DHL-höllinni og virðast KR ingar vera að taka völdin í leiknum. Staðan er 27:18 fyrir heimamenn sem tóku góða rispu í lok fjórðungsins. 

6:45 mín. - KR ingar virðast vera mættir til leiks og hafa tekið góða rispu með Brynjar Björnsson í fararbroddi.  Staðan er 17:13 fyrir KR. 

4:00 mín. - Njarðvíkingar byrja leikinn betur og leiða 6:11.  Nick Bradford fer fyrir sínum mönnum og er kominn með 7 stig. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær
Mánudaginn 8. mars
Sunnudaginn 7. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Sunnudaginn 28. febrúar
Laugardaginn 27. febrúar
Föstudaginn 26. febrúar
Fimmtudaginn 25. febrúar