[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 20.3.2010
Carlsen efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Norski skákmaðurinn Magnus Carlsen náði forystunni á Amber-mótinu með 2-0 sigri á Gelfand í gær. Á meðan gerði helsti andstæðingur hans Úkraínski skákmaðurinn Ivanchuk 1-1 jafntefli við landa sinn Ponomariov. Gelfand, Grischuk og Kramnik eru í 3.-5.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Ómar Örn Sævarsson tók 21 frákast gegn ÍR.

Ómar Örn Sævarsson tók 21 frákast gegn ÍR. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 23:38

Ómar Örn Sævarsson: Ég vil bara vinna

Ómar Örn Sævarsson var í eldlínunni með Grindavík í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ, Subway-bikarsins. Grindavík sigraði ÍR 91:78 í undanúrslitum keppninnar en Ómar er uppalinn ÍR-ingur og lék með liðinu þar til í vetur að hann söðlaði um. Hann hefur ekki samviskubit yfir því að slá gömlu félagana út úr keppninni.

„Ég styð alltaf ÍR í þeirra leikjum en mér er sama um þá þegar við spilum við þá. Ég er eigingjarn og ég vil bara vinna. Ég fæ ekkert samviskubit út af þessu. Það eru engir vinir inni á vellinum, það vilja allir vinna,“ sagði Ómar Örn að leiknum loknum. „Við vorum duglegir að koma boltanum undir körfuna og börðumst vel í fráköstunum. Ef ég á að segja alveg eins og er þá komu ÍR-ingarnir mér á óvart. Ég hef séð þó nokkra leiki með þeim að undanförnu og mér hefur fundist þeir vera andlausir í síðustu leikjum. Þetta var því langtum erfiðari leikur en ég bjóst við. Þeir voru bara mjög sprækir og það án Hreggviðs,“ sagði Ómar í samtali við mbl.is en hann reif niður 21 frákast í leiknum og skoraði 10 stig.

Gunnar Sverrisson þjálfari ÍR neitaði því ekki að hans menn hefðu átt erfitt með að valda hávöxnu leikmennina hjá Grindavík en hrósaði Kristni Jónassyni sérstaklega. „Ég var mjög heppinn með að Kristinn gat loksins spilað í kvöld. Hann hefur verið bakveikur meira eða minna í allan vetur. Hann er gríðarlega sterkur varnarmaður og hefur hæðina. Þetta er ekki eitthvað til þess að hafa áhyggjur af,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is og telur ÍR-inga geta byggt á frammistöðunni í þessum leik.„Já það er mjög spennandi leikir framundan. Það eru allir að tala um toppbaráttuna en neðri hluti deildarinnar er ekki síður spennandi. Við ætlum að taka þátt í því af fullum krafti og klára tímabilið með sóma. Ef við spilum eins og við gerðum í kvöld þá hef ég ekki miklar áhyggjur.“

Fjallað er um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars