Snýr aftur til Hauka

Ágúst Goði Kjartansson í leik með U20 íslenska karlalandsliðinu í …
Ágúst Goði Kjartansson í leik með U20 íslenska karlalandsliðinu í sumar. Ljósmynd/FIBA

Ágúst Goði Kjartansson hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið sitt Hauka.  

Ágúst Goði lék í fyrra með Black Forest Panthers í 3. deildinni í ÞýskalandiÞar var hann stoðsendingahæstur með 6,3 stoðsendingar að meðaltali í leik ásamt 11,8 stigum. Á árunum 2021 til 2023 spilaði Ágúst með Paderborn í þýsku 2. deildinni.  

Í sumar var Ágúst Goði fyrirliði U20 íslenska karlalandsliðsins í körfubolta á Norðurlandamótinu og Evrópumótinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert