Spænska liðið Bilbao tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evrópubikarsins í körfubolta með sannfærandi hætti.
Liðið vann þá heimasigur á Neptunas frá Litháen, 95:59. Bilbao vann fyrri leikinn á útivelli, 74:66, og einvígið samanlagt 169:125.
Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason skoraði átta stig, tók fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 15 mínútum með Bilbao.