Tryggvi Snær Hlinason og samherjar hans í Bilbao fóru vel af stað í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í dag þegar þeir unnu öruggan heimasigur á Breogán, 90:72.
Tryggvi lék í 18 mínútur og lét talsvert að sér kveða en hann skoraði 10 stig og tók 7 fráköst fyrir Bilbao, auk einnar stoðsendingar.
Bilbao tryggði sér á dögunum sæti í riðlakeppni Evrópubikars FIBA með tveimur sigrum á Neptunas Klaipeda frá Litháen og mætir Balkan frá Búlgaríu í fyrsta leik sínum 9. október.