99,9% krafna töpuðust
Aðeins fundust tæplega þrjátíu milljónir króna upp í 42 milljarða kröfur í Icarus Invest, eitt eignarhaldsfélaga Nóatúnsfjölskyldunnar, sem nú er gjaldþrota. Þetta kom fram í fréttum RÚV. Meira
Gerir risasamning við Kínverja
Álfyrirtækið Rio Tinto hefur skrifað undir samning við Kína sem m.a. hefur í för með sér vinnslu úr járngrýtisnámum í Vestur-Afríku. Kínverska fyrirtækið Chinalco, sem nýtur stuðnings kínverska ríkisins, mun greiða 1,3 milljarða dollara fyrir 47% hlut í námunni. Meira
Rannsakar 20 aflandsfélög
Skilanefnd Kaupþings hefur tekið rúmlega 20 félög og félagasamstæður í þekktum skattaskjólum til sérstakrar athugunar vegna tugmilljarða viðskipta þeirra við gamla Kaupþing. Fjöldi félaga innan hverrar samstæðu er á bilinu tvö til 250 og eru þau staðsett á Bresku Jómfrúareyjum, Ermasundseyjum, á Kýpur, í Panama og Lúxemborg. Eigendur margra þeirra eru Íslendingar búsettir erlendis. Meira
65% stærstu fyrirtækja gjaldþrota eða yfirtekin
Um 65% af 40 stærstu fyrirtækjum ársins 2007 eru annað hvort gjaldþrota, hafa verið yfirtekin af bönkum að öllu leyti eða að hluta eða hafa gengið í gengum endurfjármögnun sem m.a. hefur falið í sér skuldalækkun. Meira
Eignalaust félag en skuldar 47 milljarða
Lýstar kröfur í þrotabú Styrks Invest nema 47,6 milljörðum króna. Búið er eignalaust og raunar átti það í erfiðleikum með að greiða tryggingu fyrir skiptakostnaði til að geta óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Tryggingin kostar 250 þúsund krónur. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins. Meira
4,1 milljarðs tap hjá Eyri
Reiknað tap fjárfestingarfélagsins Eyris Invest var 24 milljónir evra á árinu 2009, sem sagt er stafa fyrst og fremst af niðurfærslu á bókfærðu verði hlutabréfa Eyris í Marel og Össuri vegna hlutafjárútboða félaganna á lægra gengi en raunvirði. Meira
Bandaríkjadalur kominn upp í 127 krónur
Gengi Bandaríkjadals hækkaði gagnvart íslensku krónunni í dag og er 127 krónur. Evran er 171,80 krónur, pundið 190,81 króna og danska krónan er 23,090 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka. Gengisvísitalan er 227,40 stig.
Sparisjóðir lækka vexti
Sparisjóðirnir munu lækka inn- og útlánsvexti um allt að 0,5% frá 21. mars, að því er segir í tilkynningu en á fimmtudag lækkaði Seðlabanki Íslands vexti sína um 0,5 prósentur og eru stýrivextir bankans nú 9%.
Íslandsbanki setur fasteignafélag í sölu
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast sölu á 100% hlut í Hafnarslóð sem er í dag í eigu Miðengis ehf., dótturfélags Íslandsbanka hf. Hafnarslóð ehf. er fasteignafélag sem á lóð og leikskóla við Vesturbrú 7 í Garðabæ. Meira
Tap OR 2,5 milljarður króna
Tap Orkuveitu Reykjavíkur nam 2,5 milljörðum króna á síðasta ári en árið 2008 nam tap félagsins 73 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði (EBITDA) var 13 milljarðar króna á síðasta ári en var 11,7 milljarðar króna árið 2008. Meira
Hagnaður Landsvirkjunar 24,4 milljarðar króna
Hagnaður Landsvirkjunar á síðasta ári nam 193 milljónum Bandaríkjadala sem svarar til um 24,4 milljarða króna á núverandi gengi. Árið 2008 nam tap Landsvirkjunar 345 milljónum dala. Þrátt fyrir aukinn hagnað þá dregst rekstrarhagnaður (EBITDA) félagsins saman á milli ára, er 272 milljónir dala í fyrra en var 297 milljónir dala árið 2008. Meira
Álandsbankinn ánægður með kaupin á Kaupþingi
Aðstoðarforstjóri Álandsbankans segir, að þar á bæ séu menn afar ánægðir með kaupin á rekstri Kaupþings í Svíþjóð á síðasta ári. Hafi viðskiptavinum fjölgað og einnig hafi verðmæti bankans aukist. Álandsbankinn lagði fram nærri 100 milljarða króna kröfur í þrotabú Kaupþings banka. Meira
51 kaupsamningi þinglýst
Alls var 51 kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 12. mars til og með 18. mars 2010. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.353 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,5 milljónir króna. Meira
Warren Buffett í rokkmyndbandi
Bandaríski kaupsýslumaðurinn Warren Buffett, þriðji ríkasti maður heims, bregður stundum á leik ef svo ber undir. Nú fer myndskeið þar sem Buffett sést í hlutverki rokksöngvarans Axl Rose sigurför um netið. Meira
Yfirtökutilboði Sports Direct hafnað
Útivistarverslunarkeðjan Blacks Leisure Group hefur hafnað yfirtökutilboði frá Sports Direct International. Sports Direct á 28,5% hlut í Blacks en hluturinn var keyptur af þrotabúi Kaupthing Singer & Friedlander. Meira
Byggingarvísitala hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar, sem Hagstofan reiknaði út um miðjan mars hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,3%.
ANA sendir frá sér afkomuviðvörun
Japanska flugfélagið All Nippon Airways (ANA) sendi frá sér afkomuviðvörun í dag þar sem fram kemur að tap félagsins á rekstrarárinu sem lýkur nú í lok mars sé meira heldur en fyrri spár bentu til. Meira
SAS tekur milljarða lán
Norræna flugfélagið SAS er að gefa út skuldabréf til fimm ára sem hljóða samtals upp á 1,42 milljarða sænskra króna, um 25 milljarða íslenskra króna, að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem sænskir fjölmiðlar vísa til. Meira
Telegraph rifjar upp starfsemi Baugs
Breska dagblaðið Telegraph fjallar um fyrirætlanir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að hefja verslunarrekstur í Bretlandi á ný, í dag. Þar segir að Jón Ásgeir fyrrum stjórnarformaður Baugs sem varð gjaldþrota sé að undirbúa endurkomu í breskan verslunarrekstur, nú með keðju lágvöruverðsverslana undir heitinu Best Price. Meira
Hampiðjan selur til Færeyja fyrir tugi milljóna
Öll nýjustu skipin í færeyska fiskveiðiflotanum eru nú búin Dynex-togtaugum frá Hampiðjunni. Meira
Hafði hagsmuni af stöðugri krónu
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir Landsbankann haft hagsmuni af stöðugu gengi krónunnar. Meira
Íbúðakaup á Laugavegi B5 ehf. ofviða
Ástæða þess að rekstrarfélag skemmtistaðarins B5 við Bankastræti komst í þrot eru kaup á þremur lúxusíbúðum við Laugaveg. Meira
Ráðist á Madoff
Bernard Madoff, sem afplánar nú 150 ára fangelsisdóm í Norður-Karólínu fyrir fjársvik, varð fyrir líkamsárás í fangelsinu í desember, að því er Wall Street Journal hefur eftir þremur heimildarmönnum innan fangelsisins. Meira
Skuldabréfaveltan 17,5 milljarðar króna
Veltan með skuldabréf nam 17,5 milljörðum króna í Kauphöllinni í dag en hlutabréfaveltan var 208 milljónir króna. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,44% og er 933,92 stig. Mest hækkuðu bréf Marels eða um 3,09%.
Hertz kaupir bíla af Heklu
Undirritaður hefur verið samningur milli Heklu og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 50 nýjum Skoda Octavia og Skoda Yeti bifreiðum sem verða afhentar á vormánuðum en bílaleigan stefnir að því að vera búin að endurnýja allan bílaflota sinn haustið 2011. Meira







Senda inn efni
