
Tap hjá Kodak fimmta fjórðunginn í röð
Eastman Kodak tapaði 52 milljónum dala, 3,2 milljörðum króna, á fjórða ársfjórðungi 2005. Er það fimmti fjórðungurinn í röð sem félagið er rekið með tapi. Félagið hefur gengið í gegnum mikla endurskipulagningu vegna breytinga yfir í stafrænar myndatökur. Er það helsta skýringin á lélegri afkomu félagins. Á sama tímabili í fyrra tapaði félagið 59 milljónum dala.
Sala Eastman Kodak jókst um 12% í fjórðungnum, úr 3,75 milljörðum dala í 4,2 milljarða dala.
Árið 2005 nam tap Kodak 1,37 milljörðum dala, 85 milljörðum króna. Tekjur félagsins jukust um 6%, úr 13,52 milljörðum dala í 14,27 milljarða dala.
Sala á vörum sem tengjast stafrænni myndatöku var 54% af tekjum samstæðunnar á síðasta ári. Er það fyrsta árið sem þær vörur eru yfir helmingur veltu félagsins.
Til baka







Senda inn efni