[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | mbl.is | 27.3.2008 | 10:49

Íslandi bjargað!

„Seðlabanki Evrópu reif í gær reglubók sína til að bjarga Íslandi, hinum risastóra vogunarsjóði við vesturströnd Noregs sem á stóran hluta af breskum tískuvöruverslunum."

Svona hefst grein í breska blaðinu Financial Times í dag. Þegar nánar er lesið kemur í ljóst, að dálkahöfundinum er ekki fullkomin alvara þótt ýmislegt sé undirliggjandi.

Í greininni segir m.a. að seðlabanki Evrópu hafi leyft Íslandi að fá fé lánað gegn þýskum veðum en hluti af samkomulaginu hafi verið að leyfa Þýskalandi að innlima Ísland fyrir 2 krónur á hlut. Með þessu er verið að vísa til yfirtöku JP Morgan á Bear Stearns sem fór fram fyrir milligöngu bandaríska seðlabankans.

„Fjárfestar eru sagðir vera æfir og segja að Reykjavík ein sé 10 milljarða dala virði. En samkomulagið er hagstætt fyrir Þýskaland, sem hefur lengi viljað komast í fiskirí og fær nú fiskideild Íslands nánast ókeypis.

En Danir eru reiðir enda telja þeir sig hafa forkaupsrétt á Íslandssjóðnum, sem þeir ráku til 1944. Danir hafa hótað málaferlum nema þeir fái forkaupsréttinn á eynni. Embættismenn reyna nú að hafa milligöngu um sölu og endurleigu þar sem Danmörk leigir Ísland til Þýskalands fyrir litla upphæð en heldur áfram  kröfum sínum til streitu."  

Grein Financial Times

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars