88 starfsmönnum Glitnis sagt upp

Höfuðstöðvar Glitnis.
Höfuðstöðvar Glitnis. mbl.is/ÞÖK

Glitnir hefur í dag lokið samræmdum uppsagnaraðgerðum á Íslandi sem fela í sér uppsögn 88 starfsmanna bankans. Um er að ræða starfsmenn úr flestum deildum og sviðum bankans. Segir bankinn að starfsmannafjöldi á Íslandi verði á eftir svipaður og í upphafi árs 2007 eða um 1000.

Um er að ræða starfsmenn úr flestum stöðum, deildum og sviðum bankans. Skipting milli kynja er jöfn, meðalaldur þeirra sem um ræðir er um 40 ár, en um 2/3 þeirra starfsmanna sem um ræðir hafa starfað hjá bankanum í skemur en 5 ár. Með þessu hefur stöðugildum á öllum starfssvæðum Glitnis fækkað um 255 vegna starfsloka, uppsagna eða vegna þess að lausráðnir starfsmenn hafa ekki verið fastráðnir.

Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp munu flestir láta strax af störfum.  Bankinn hefur upplýst Vinnumálastofnun og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja um umræddar uppsagnir.

„Það er sársaukafullt að grípa til ráðstafana af þessu tagi. Það er eftirsjá af því góða fólki sem nú lætur af störfum vegna þessara hagræðingaraðgerða og ég óska því alls hins besta í framtíðinni. Starfsfólk Glitnis hefur alltaf verið eftirsótt á vinnumarkaðnum og ég er ekki í vafa um að því fólki sem hér um ræðir muni bjóðast störf við hæfi á nýjum vettvangi," segir Lárus Welding, forstjóri Glitnis í tilkynningu frá bankanum.

Í tilkynningunni segir, að órói á alþjóðlegum fjármálamörkuðumhafi á stuttum tíma gjörbreytt starfs- og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um allan heim. Íslensk fjármálafyrirtæki hafi ekki farið varhluta af þessari þróun og hafi dregið úr vexti þeirra á Íslandi sem og erlendis.

Á síðasta ári voru ráðnir 319 starfsmenn til Glitnis á Íslandi, sem er met í sögu bankans. Glitnir segir, að áætlanir á fyrri helmingi ársins 2007 hafi gert ráð fyrir áframhaldandi hröðum vexti og uppbygging á innri starfsemi bankans hafi tekið mið af þeim áætlunum. Frá því í lok síðasta árs hafi Glitnir brugðist við breyttum aðstæðum á fjármálamarkaði, meðal annars með því að aðlaga starfsmannafjölda bankans að verkefnastöðu og umsvifum á Íslandi og erlendis.

Erlend starfsemi endurskipulögð Starfsemi Glitnis í Evrópu hafi frá ársbyrjun verið í endurskoðun með það fyrir augum að skerpa áherslur og ná fram hagræðingu og lækkun kostnaðar.

Fram kemur að almennt kostnaðaraðhald hafi ríkt í bankanum frá ársbyrjun, nýráðningum haldið í lágmarki og ekki hafi verið ráðið störf sem hafa losnað. Í apríl var útibúi bankans í Smáralind lokað og það sameinað útibúinu í Hamraborg í Kópavogi. Þá verða útibú Glitnis í Skútuvogi og á Kirkjusandi sameinuð þar sem sérstök áhersla verður lögð á þjónustu við smærri og meðalstór fyrirtæki.

Tilkynning Glitnis
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK