Afgangur af vöruskiptum í júní

Samdráttur varð á útflutningi sjávarafurða.
Samdráttur varð á útflutningi sjávarafurða.

Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 41,4 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,1 milljarð króna. Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,3 milljarða króna. Í júní 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,4 milljarða króna á sama gengi, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni.

Fyrstu sex mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 206,8 milljarða króna en inn fyrir 231,2 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 24,4 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 50 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 25,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu sex mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 25,6 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 48,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 41,4% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,1% minna en á sama tíma árið áður.  Mestur samdráttur varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla en á móti kom mikil aukning í útflutningi á áli.

Fyrstu sex mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings svipað og á sama tíma árið áður á föstu gengi. Mestur samdráttur varð í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum, eldsneyti og smurolíum og mat- og drykkjarvörum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK