[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | Morgunblaðið | 23.3.2009 | 05:30

Á þriðja hundrað missir vinnu

Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is

Öllum útibúum SPRON verður lokað og viðskiptavinum beint til Nýja Kaupþings. Á þriðja hundrað manns missa vinnuna samtals í Sparisjóðabankanum og SPRON í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið (FME) tók yfir starfsemina hjá báðum fyrirtækjum.

„Mér sýnist á öllu að meirihlutinn missi vinnuna,“ segir Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF), um yfirtöku SPRON og Sparisjóðabankans. Um 180 manns unnu hjá SPRON og færist hluti þeirra yfir til nýrra starfa hjá Nýja Kaupþingi og einhverjir munu sinna ráðgjafarstörfum hjá skilanefnd. 60-70 manns unnu hjá Sparisjóðabankanum. Á þriðja hundrað bankamenn eru því að bætast við þá 1.300 sem nú þegar eru atvinnulausir. „Ég hugsa til þess með hryllingi að þetta skuli gerast. [...] Ef við tökum fjölda starfsmanna í bönkunum áður en þessi bóla fór af stað þá voru starfsmenn í bönkunum rúmlega 4.000 talsins, áramótin 2003-2004,“ segir Friðbert. Hann segir að næstu skref hjá SSF séu að tryggja áunnin réttindi þeirra starfsmanna sem missa vinnuna.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 31. ágúst