[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Íslandsbanki á nú nærri helmingshlut í Icelandair.

Íslandsbanki á nú nærri helmingshlut í Icelandair.

Viðskipti | mbl.is | 18.5.2009 | 09:23

Íslandsbanki með 47% hlut í Icelandair

Íslandsbanki hefur leyst til sín 42% hlutafjár í Icelandair Group. Í tilkynningu frá bankanum segir að þetta hafi engin áhrif á daglega starfsemi félagsins. Stefnt sé að því að hluturinn verði seldur aftur í opnu og gagnsæju söluferli. Eftir þetta á bankinn samtals um 47% hlut í félaginu.

Íslandsbanki leysir bréfin til sín á genginu 4,5 fyrir hvern hlut sem er síðasta skráða viðskiptagengi með bréf í félaginu. Hlutabréfin sem Íslandsbanki hf. hefur í dag leyst til sín voru til tryggingar á lánum vegna hlutabréfakaupa í Icelandair Group.

Þá hefur Fjármálaeftirlitið tekið ákvörðun um, að Íslandsbanki  fái skilyrta undanþágu frá skyldu til að gera yfirtökutilboð í Icelandair Group vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem bankinn sé í sem kröfuhafi gagnvart stórum hluthöfum félagsins. 

Í tilkynningu Íslandsbanka segir: „Rekstur Icelandair Group hf. gekk betur á fyrsta ársfjórðungi 2009 en áætlanir gerðu ráð fyrir. Félagið hefur á síðustu mánuðum unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í samvinnu við Íslandsbanka hf. Þeirri vinnu miðar vel og það er vilji bankans að halda áfram samstarfi við núverandi stjórnendur félagsins.

 Hlutabréf félagsins áfram skráð í Nasdaq OMX kauphöll

Icelandair Group hf. er skráð í Nasdaq OMX kauphöllinni og eru hluthafar félagsins samtals um 850. Félagið samanstendur af 12 dótturfélögum sem starfa á sviði flug- og ferðaþjónustu hérlendis og erlendis og hjá þeim félögum starfa samtals um 4000 manns.

Það er ætlun Íslandsbanka að Icelandair Group hf. verði áfram skráð í Nasdaq OMX kauphöll. Eignarhlutur bankans verður seldur í opnu og gagnsæju söluferli eins fljótt og unnt er.

Fjármálaeftirlitið hefur veitt Íslandsbanka hf. tímabundna undanþágu frá yfirtökuskyldu en takmarkað atkvæðisrétt bankans við 30% virkra atkvæða.

Gert er ráð fyrir að boðað verði til hluthafafundar í félaginu á næstunni.“

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 31. ágúst