Kaupþing á Mön í gjaldþrotaskipti
Bankinn Kaupthing Singer & Friedlander á eynni Mön hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta en kröfuhafar felldu í síðustu viku áætlun stjórnvalda á Mön um að 54% sparifjáreigenda fengu inneignir sínar í bankanum greidd innan 3 mánaða og 75% fengju inneignir sínar greiddar innan 2 ára.
Dómstóll í Manx, höfuðborg eyjarinnar, úrskurðaði í dag að bú Kaupthings Singer & Friedlander skyldi tekið til gjaldþrotaskipta. Um leið er virkjað innistæðutryggingakerfi stjórnvalda á eyjunni.
Blaðið Daily Telegraph segir, að þessi niðurstaða sé sigur fyrir þá rúmlega 10 þúsund sparifjáreigendur, sem áttu innistæður í bankanum. Kaupthing Singer & Friedlander á Mön var sjálfstætt útibú Kaupthing Singer & Friedlander í Lundúnum.
Sparifjáreigendurnir hafa ekki getað nálgast fé sitt frá því í október þegar breska fjármálaeftirlitið setti Singer & Friedlander í greiðslustöðvun. Nú þegar bankinn hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta fá þeir sjálfkrafa helming innistæðna sinna strax. Það fer síðan eftir því hvernig gengur að selja eignir búsins hve mikið fæst upp í afganginn af kröfunum.
Kröfuhafarnir hafa einnig krafist þess að opinber rannsókn fari fram á því að 550 milljónir punda voru fluttar frá höfuðstöðvum bankans á Mön til Singer & Friedlander í Lundúnum skömmu fyrir fall bankans. Vegna aðgerða breskra stjórnvalda gagnvart íslensku bönkunum eru þessir fjármunir frystir.
„Þetta er farsi sem hefur haft alvarlegar afleiðingar," segir David Greene, lögmaður sparifjáreigendanna.
Til baka







Senda inn efni