[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | Morgunblaðið | 29.5.2009 | 05:30

Seðlabankinn herðir eftirlit með gjaldeyrishöftum

Eftir Helga Vífil Júlíusson helgivifill@mbl.is

Gjaldeyriseftirlitið, ný deild hjá Seðlabankanum, tekur til starfa eftir helgi til þess að auka eftirlit með gjaldeyrishöftum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Ingibjörg Guðbjartsdóttir lögfræðingur mun leiða þennan þriggja manna starfshóp. Hún starfaði áður hjá Straumi fjárfestingarbanka.

Gjaldeyriseftirlitið mun fylgjast með krónueignum erlendra aðila og skilaskyldu innlendra aðila. Hafa ber í huga að gjaldeyrismiðlun er leyfisskyld starfsemi frá Fjármálaeftirlitinu.

Slíkt eftirlit er þó ekki nýlunda hjá Seðlabankanum. Hann hefur haft eftirlit með þessum þáttum og vísað nokkrum málum til Fjármálaeftirlitsins, sem bíða niðurstöðu. Morgunblaðið fékk ekki upplýsingar um hve mörg mál er að ræða frá Seðlabankum.

Gjaldeyrishöftum var komið á í nóvember í kjölfar bankahrunsins síðastliðið haust til þess að stemma stigu við útflæði erlends gjaldeyris með það fyrir augum að styrkja krónuna, en gengi krónu féll við bankahrunið. Höftin voru aukin í apríl því gengi krónu hafði sigið, þrátt fyrir gjaldeyrishöft.

Talsverður munur hefur verið á gengi krónu hér á landi og erlendis. Hann hefur þó minnkað. Það er því hægt að hagnast á mismuninum. Samkvæmt upplýsingum Reuters kostar evran 210 krónur en 178 samkvæmt Seðlabankanum.

Kringum höftin

Viðskipti með krónur eiga sér stað erlendis sem Seðlabanki Íslands getur ekki fylgst með. Ekki er vitað hversu umfangsmikil þessi viðskipti eru. Ekkert óeðlilegt þarf að vera við þessi viðskipti ef ekki er um að ræða gjaldeyri innlendra aðila sem lúta skilaskyldu.

Fyrrverandi bankastarfsmenn hér á landi hafa séð tækifæri í því að para saman fólk sem vill selja krónur og fá gjaldeyri í staðinn, til dæmis evrur. Þetta geta verið erlendir aðilar sem vilja losna við krónurnar og Íslendingar sem eiga gjaldeyri og þurfa krónur. Þá er betra að kaupa ódýrar krónur erlendis en skipta þeim á Íslandi.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september
Föstudaginn 3. september
Fimmtudaginn 2. september