[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Már Guðmundsson

Már Guðmundsson mbl.is/Kristinn

Innlent | mbl.is | 26.6.2009 | 16:39

Már Guðmundsson seðlabankastjóri

Bloggað um fréttina

Forsætisráðherra hefur skipað Má Guðmundsson í embætti Seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2009 og Arnór Sighvatsson í embætti aðstoðarseðlabankastjóra til fjögurra ára frá og með 1. júlí 2009.

Már Guðmundsson lauk BA prófi í hagfræði frá háskólanum í Essex auk þess sem hann stundaði nám í hagfræði og stærðfræði við Gautaborgarháskóla. Hann er með M-phil. gráðu í hagfræði frá háskólanum í Cambridge og stundaði þar doktorsnám. Már hefur frá árinu 2004 gegnt starfi aðstoðarframkvæmdastjóra peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss. Hann starfaði áður í Seðlabanka Íslands í um tvo áratugi og þar af sem aðalhagfræðingur í rúm tíu ár. Már var efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra frá 1988- 1991. Már hefur ritað fjölda greina og ritgerða um peninga- og gengismál og skyld efni.

Arnór Sighvatsson lauk doktorsprófi í hagfræði frá North Illinois háskóla og hafði áður lokið BA í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands og MA prófi í hagfræði frá North Illinois háskóla. Með námi starfaði Arnór við Hagstofu Íslands og kenndi við North Illinois háskólann ásamt doktorsnámi. Hann hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 1990, var aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræðisviðs frá árinu 2004 og settur aðstoðarseðlabankastjóri árið 2009. Arnór var aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, skrifstofu Norðurlanda, frá 1993 – 1995. Arnór er höfundur margra greina um peningamál og gengismál.

Settur Seðlabankastjóri, Svein Harald Øygard, mun gegna því embætti uns Már Guðmundsson tekur við embættinu þann 20. ágúst næstkomandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september