Gjaldeyrisbraskarar græða
Bloggað um fréttina
-
Einar GuðjónssonEina þjónustugreinin sem ekki er rekin með tapi
-
Ólafur IngólfssonEinn einn naglinn í líkkistu krónunnar
-
GunniSTökum upp dollar
-
FrjálshyggjufélagiðDæmd til að mistakast
-
Magnús BirgissonHið besta mál....
-
Björn HeiðdalBarnabarn Steingríms Joð. græðir feitt..
-
Þórður Víkingur FriðgeirssonGræðgi er góð (?)
-
Ómar GeirssonViðgengst svo lengi sem braskið nýtur velvildar
-
Jón Ingi CæsarssonAfætur og braskarar til stórskaða enn.
-
Jón SnæbjörnssonEnn og aftur ætla ráðamenn þjóðrarinnar að horfa
-
Rúnar Þór ÞórarinssonÞetta liggur GERSAMLEGA í augum uppi.
Gjaldeyrishöftin hafa reynst mikill hvalreki fyrir svokallaða „haftamiðlara“, sem beita margvíslegum brögðum til að hagnast á þeim mun sem er á gengi krónunnar í Seðlabankanum annars vegar og í erlendum bönkum hins vegar.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa einstakir aðilar hagnast um hundruð milljóna króna með þessum hætti og eru vísbendingar um að glæpamenn séu farnir að líta á gjaldeyrisbrask sem sjálfstæða tekjulind.
Mikilvægt er að gera greinarmun á löglegum gjaldeyrisviðskiptum og ólöglegum, en fjölmargir aðilar hafa heimild til kaupa á gjaldeyri á gengi Seðlabankans.
Braskararnir leita uppi þá sem hafa slíkar heimildir, eða fá slíka heimild sjálfir, og geta á skömmum tíma grætt morð fjár, enda er 20% munur á gengi krónunnar hér og erlendis.
Leggjast á námsmenn erlendis
Hafa þeir t.d. fengið heimild hjá Seðlabanka til kaupa á dýrum eignum erlendis, t.d. bifreiðum eða fasteignum. Í sumum tilfellum er gjaldeyrinum skipt í krónur um leið og hann er kominn út fyrir landsteinana, en aðrir reyna að fela slóðina með málamyndaviðskiptum.Þá eru dæmi þess að menn hafi safnað saman greiðslukortum Íslendinga, farið með þau til útlanda og tekið eins mikið og hægt hefur verið út úr hraðbönkum. Þegar íslensk kort eru notuð erlendis er notað gengi Seðlabankans. Fénu er svo skipt í krónur úti og þær fluttar heim aftur.
Þá hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að hart hafi verið lagt að íslenskum námsmönnum erlendis að nýta sér heimildir til að taka út gjaldeyri á seðlabankagenginu og bjóðast braskar þá til að fjármagna úttektirnar.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni

