Segir frétt Stöðvar 2 ranga

Magnús Þorsteinsson
Magnús Þorsteinsson

Magnús Þorsteinsson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Stöðvar 2 í gærkvöldi þar sem fram kom að hann hefði flutt mikla fjármuni frá Íslandi til skattaskjóla, í gegnum fjárfestingabankann Straum. Segir hann fréttina ósanna og hann hafi aldrei átt peninga inn á reikningum Straums.

„Frétt Stöðvar 2 frá því í gærkvöldi, þar sem því var haldið fram að ég hafi flutt mikla fjármuni frá Íslandi til skattaskjóla, í gegnum fjárfestingabankann Straum, er helber ósannindi. Ég hef aldrei átt fjármuni inni á reikningum í bankanum og hafna alfarið þeim rógburði sem fréttastofa Stöðvar 2 setti fram um mig í gær.

Ég óska hér með eftir afsökunarbeiðni vegna þessarar umfjöllunar, frá fréttastofu Stöðvar 2 með jafn áberandi hætti og upphaflega fréttin, þegar hún var sögð. Verði Stöð 2 ekki við þessari sanngjörnu ósk minni, mun ég leita til dómstóla og leita þar réttar míns.

Margt hefur verið sagt ónákvæmt og ósatt um mína persónu sem hluta af hinum skilgreindu „auðmönnum.“ Flest hefur maður látið yfir sig ganga, en hér verð ég að draga línuna. Það má ekki reka íslenska fjölmiðla áfram á lygum, ekki frekar en aðrar stofnanir. Ég hef falið lögmanni mínum að undirbúa stefnu á hendur fréttastofu Stöðvar 2, með þeim hætti sem réttarkerfið býður upp á.

Virðingarfyllst

Magnús Þorsteinsson"

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK