[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Yuji Yokoyama, framkvæmdastjóri Toyota (í miðjunni) buktar sig eftir að hafa afhent yfirmanni í samgönguráðuneytinu í Tókýó tilkynningu um innköllun Priusbíla í dag.

Yuji Yokoyama, framkvæmdastjóri Toyota (í miðjunni) buktar sig eftir að hafa afhent yfirmanni í samgönguráðuneytinu í Tókýó tilkynningu um innköllun Priusbíla í dag. reuters

Viðskipti | mbl.is | 9.2.2010 | 06:47

Toyota innkallar Prius í stórum stíl

Toyota hefur ákveðið að innkalla um 200.000 Prius tvinnbíla sem seldir voru í Japan í fyrra vegna galla í bremsum. Óljóst er hvort að bílar seldir utan Japans verði einnig innkallaðir, en líklegt þykir að af því verði einnig.

Prius var mest selda einstaka bílgerðin í Japan í fyrra. Hann er jafnframt söluhæsti tvinnbíllinn á heimsvísu undanfarin ár.

Kvartanir hafa borist undan bremsum Priusbílsins bæði í Japan og í Bandaríkjunum. Lýsa þær sér í því að bremsurnar hafi hætt að virka augnablik þegar ekið var eftir hrjúfum og ósléttum vegum.

Talið er að bremsugallinn eigi við um allt að 270.000 bíla sem seldir hafa verið í Japan og Bandaríkjunum frá í maí í fyrra. Toyota skellir skuldinni á galla í hugbúnaði stýrikerfis bremsubúnaðarins.

 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars