Atvinnuleysi minnkar

Skráð atvinnuleysi í september var 7,1%, en að meðaltali 11.547 manns voru atvinnulausir í september. Minnkaði atvinnuleysi um 0,2 prósentur frá ágúst, eða um 549 manns að meðaltali. 

Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 156 eða um 0,1 prósentur að meðaltali en konum fækkaði um 393 að meðaltali eða um 0,5 prósentur. Mest fækkaði atvinnulausum hlutfallslega á Norðurlandi eystra en þar fækkaði um 90 manns á atvinnuleysisskrá að meðaltali.

Atvinnuleysið er 8% á höfuðborgarsvæðinu en 5,4% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 11,3%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,2%. Atvinnuleysið er 7,2% meðal karla og 6,9% meðal kvenna.

Vinnumálastofnun segir, að yfirleitt byrji árstíðasveifla að hafa áhrif til aukningar atvinnuleysis í október. Í október 2009 var atvinnuleysi 7,6% og jókst úr 7,2% í september. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í október aukist og verði á bilinu 7,2%‐7,6%.

Skýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuleysi í september

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK