Botni verðfalls væntanlega senn náð

mbl.is

Verð á íbúðum hefur lækkað um þriðjung að raungildi frá því það var í hámarki á árinu 2007 en áætlað er að botni verðfallsins sé nú senn náð og gert er ráð fyrir fremur litlum breytingum á íbúðaverði næstu misserin. Þetta kemur fram í nýrri hagspá hagdeildar ASÍ fyrir tímabilið 2010-2013.

Þröng staða heimilanna og mikil óvissa hafa dregið verulega úr eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, þótt markaðurinn hafi heldur tekið við sér á síðari hluta þessa árs.

Því er gert ráð fyrir að íbúðafjárfestingar verði takmarkaðar næstu tvö árin en að þær taki að aukast á ný á síðari hluta árs 2012 og á árinu 2013, samkvæmt spá ASÍ. 

Spá hagdeildar gerir ráð fyrir ríflega fimmtungs samdrætti í íbúðarfjárfestingum á þessu ári en umsvif á byggingamarkaði eru nú afar lítil eftir þriggja ára samfellda niðursveiflu. Á árinu 2011 er gert ráð fyrir óbreyttum fjarfestingum í íbúðarhúsnæði en aukningu um 8% á árinu 2012 og um fimmtungs aukningu á árinu 2013.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK