Kynningarfundur fyrir fulltrúa fjölmiðla og fjármálafyrirtækja vegna yfirlýsingar fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands og útgáfu Fjármálastöðugleika hefst kl. 9.30.
Á kynningarfundinum munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, og Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og efni Fjármálastöðugleika 2024/2 og svara spurningum fundargesta.
Sýnt verður frá fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.