EIF og Arion banki styðja frumkvöðla

Frá undirritun samningsins í Arion banka í dag. Marjut Falkstedt, …
Frá undirritun samningsins í Arion banka í dag. Marjut Falkstedt, forstjóri EIF, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi.

Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Arion banka.

Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift samkvæmt tilkynningunni að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella. Stuðningi InvestEU er ætlað að styðja við þrjú ólík svið hér á landi: Fjárfestingar á sviði sjálfbærni, lánveitingar til nýsköpunar og stafvæðingar og menningu og skapandi greinar.

Einstaklega ánægjulegt

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sagði við undirritunina að það væri einstaklega ánægjulegt að endurvekja samstarf bankans við Evrópska fjárfestingasjóðinn. „Samstarf okkar fyrir um átta árum var grunnurinn að stuðningi Arion við fjölmörg nýsköpunarverkefni t.a.m. á sviði fiskeldis, gagnavera, umhverfisvænna orkugjafa og húðvara. Nú nær samstarfið til enn fleiri sviða með áherslu á nýsköpun og stafvæðingu samfélagsins, menningu og skapandi greinar og sjálfbærni- og umhverfismál. Samstarf okkar og fjárfestingarsjóðsins er mikilvægt og auðveldar okkur að lána til verkefna á þessum sviðum. Það gerir okkur kleift að fjármagna verkefni sem eru komin skemmra á veg en ella og á hagstæðari kjörum, uppfylli þau skilyrði samningsins.“

Í tilkynningunni segir að þegar kemur að fjárfestingum á sviði sjálfbærni þá gerir ábyrgð frá Evrópska fjárfestingasjóðnum Arion kleift að styðja enn frekar við grænar fjárfestingar sem stuðla að umhverfisvænna efnahagslífi og fjárfestingar sem stuðla að inngildingu. Sá hluti ábyrgðanna sem er ætlaður til stuðnings við nýsköpun og stafvæðingu mun samkvæmt tilkynningunni auka aðgengi smárra og meðalstórra fyrirtækja, sem leggja stund á fjárfrekar rannsóknir, að fjármagni og stuðla almennt að stafvæðingu fyrirtækja hér á landi. Síðast en ekki síst gerir samningurinn Arion kleift að auka aðgengi kvikmyndageirans hér á landi, sem hefur eflst verulega undanfarin ár, og tengdra greina að lánsfjármagni og þannig stuðla að frekari styrkingu þeirra og aukinni hæfni til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru.

Hafi veruleg áhrif

„Þetta er annað verkefnið sem við komum að á Íslandi eftir að landið gerðist aðili að InvestEU áætluninni og við sjáum fram á að það muni hafa veruleg áhrif,“ sagði forstjóri EIF, Marjut Falkstedt, við undirritunina. „Við unnum fyrst með Arion fyrir um áratug og það er ánægjulegt að geta nýtt áfram styrkleika bankans við að hrinda meginmarkmiði okkar í framkvæmd; að fjármagna þau smáu og meðalstóru fyrirtæki sem mest þurfa á fjármagni að halda. Við erum hluti af Evrópsku fjárfestingarbankasamstæðunni og standa loftlagsmál og sjálfbærni okkur – eins og Arion banka – nærri. Að auki, þá gleður það okkur að saman munum við beina sjónum okkar sérstaklega að íslenskum fyrirtækjum sem starfa á sviði nýsköpunar og stafvæðingar og menningar og skapandi lista.“

Náð góðum árangri

Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Clara Ganslandt tók einnig til máls við undirritunina: „Í um þrjá áratugi hafa íslensk fyrirtæki, háskólar og rannsóknar- og menningarstofnanir tekið þátt í ýmsum áætlunum Evrópusambandsins. Þau hafa náð góðum árangri og eru mikils metin af alþjóðlegum samstarfsaðilum sínum. Ég hlakka til að fylgjast með hvernig ábyrgðarsamningur EIF og Arion banka sem undirritaður var hér í dag mun hjálpa smáum og meðalstórum á Íslandi sem starfa á sviði umhverfismála, tækni og menningar.“

Ábyrgðarsamningurinn nú er annar ábyrgðarsamningurinn sem Arion banki og EIF gera. Sá fyrri var gerður árið 2016 og var hluti af InnovFin ábyrgðum til smárra og meðalstórra fyrirtækja. Áhersla var á stuðning við nýsköpun lítilla fyrirtækja í formi lánveitinga sem námu alls rúmlega 16 milljörðum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK