Fjögur framboð samþykktu skattaloforðið

Fjögur framboð hafa samþykkt loforð samtaka Skattgreiðenda að hækka ekki …
Fjögur framboð hafa samþykkt loforð samtaka Skattgreiðenda að hækka ekki skatta á næsta kjörtímabili.

Ábyrg framtíð, Lýðræðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eru þau framboð, sem hafa samþykkt skattloforð samtaka Skattgreiðenda um að hækka ekki eða jafnvel lækka skatta á næsta kjörtímabili.

Fram kemur í tilkynningu samtakanna, sem var nýlega sent oddvitum allra framboða í hverju kjördæmi, boð um að skrifa undir umrædd skattaloforð.

Í loforðinu felst að viðkomandi frambjóðendur strengja þess heit að hækka ekki skatta eða búa til nýja á komandi kjörtímabili, verði þeir kjörnir á Alþingi.

Tilgangur skattaloforðsins sé að hjálpa þeim kjósendum, sem enn hafa ekki ákveðið hvað þeir ætla að kjósa, hvort vilji þeirra sé að greiða hærri skatta á næsta kjörtímabili eða ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka