Höfundaréttarfyrirvari

Notkun efnis af vefsvæðum útgáfufélags Morgunblaðsins

Fréttaefni, s.s. texti, myndir og grafík, og annað efni á mbl.is og öðrum vefsvæðum á vegum Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, nýtur verndar samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972, með áorðnum breytingum.

Einstaklingum er heimilt að prenta út efni sem birt er á heimasíðu Morgunblaðsins til einkanota. Heimildin nær ekki til lögaðila og atvinnureksturs þeirra.

Einstaklingum er ennfremur heimilt að gera rafræn eintök af efni birtu á heimasíðu Morgunblaðsins ef notkun efnisins er til einkanota. Heimildin nær ekki til lögaðila og atvinnureksturs þeirra.

Frekari notkun efnis eða dreifing þess er háð samþykki útgáfufélags Morgunblaðsins. Unnt er að kaupa efni, s.s. fréttagreinar eða ljósmyndir, samkvæmt sérstöku samkomulagi. Nánari upplýsingar um kaup á slíku efni eru veittar í síma 569-1100.

Tenglar, myndatilvísanir o.fl.

Einstaklingum er að öllu jöfnu heimilt að vísa með tenglum á opið efni á mbl.is. Þetta á einnig við um stakar fréttir eða annað efni sem ekki er tengt í úr leiðakerfi vefsins. Sjálfvirk söfnun efnis og endurbirting efnisbúta af www.mbl.is í atvinnurekstrarskyni er óleyfileg nema fylgt sé almennum ákvæðum höfundalaga.

Óleyfilegt er að endurbirta mynd- eða margmiðlunarefni sem vistað er á vefjum útgáfufélags Morgunblaðsins beint á vefsíðum annarra vefja (e. „hotlinking“).

Endurbirting á efni af mbl.is þannig að heimasíðan eða hluti hennar virðist vera hluti af annarri vefsíðu er óheimil án sérstaks samnings þar að lútandi.

Brot gegn ofangreindum skilmálum kann að hafa í för með sér að Morgunblaðið geri kröfu um greiðslu endurgjalds eða skaðabóta.

Útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki ábyrgt fyrir efni heimasíða og vefsvæða sem vísað er til af mbl.is eða af öðrum vefsíðum fyrirtækisins.